|
Fleira skemmtilegt fólk :)
|
19.09.2007 19:59:08 / johannab
Sko aldrei að vita nema maður hendi inn einu og einu bloggi inn á milli þegar manni sárvantar afsökun fyrir því að vera ekki að læra, og gefa fólki tækifæri á að gera smá grín að minni lélegu stafsetningarkunnáttu. En já skólinn búinn að vera á fullu hátt í 5 vikur núna. Gengur bara fyrir sig eins og venjulega, nóg að gera og alltaf að berjast við að drukkna ekki. En þetta hefst nú allt á endanum, skulum við vona allavega. Búin að henda inn einum nýjum myndalink, Haustferð Guðbrands '07. Það var sem sagt farið síðast liðinn föstudag með Guðbrandi, Nemendafélagi byggingatæknifræðinema í heljarinnar haustferð og svo brjálað partý á eftir. Hátindur kvöldsins var þegar ég "eignaðist nýjan frænda" svona nokkurn veginn, ef það er hægt að orða það þannig. Drullaðist loksins til að upplýsa frænda minn sem er á 7.önn í byggingatæknifræði að við værum nú skild. Hvorki meira né minna en systrabörn. So that's all good Framundan eru fjölmargir skemmtilegir viðburðir. Byrjar með Volare-kynningu hjá Ástu gellu á laugardaginn. Eftir það liggur leiðin í svakalegt innflutningspartý niður í bryggjuhverfi til Birnu og Stefáns, þar sem slett verður rækilega úr klaufunum. Eftir rúma viku, eða á laugardaginn í næstu viku verður svo farin haustferð Technis, þar sem galvaskir drykkjuhrútar og stuðboltar úr tæknifræðinni ætla að leggja suðurlandið undir sig. Liðið verður svo ferjað aftur heim á sunnudeginum, eflaust í misjöfnu ástandi  TOPPURINN Á TILVERUNNI verður svo eftir rúmar tvær vikur þegar ég sting af til elsku bestu Danmerkunnar minnar. Miðvikudaginn 3.okt leggjum við Svandís Ósk, bestu íslensku aupair-stúlkurnar, í heimsókn til Köben og Næstved. Hef ekki séð fjölskylduna Ostergaard í 2 ár! Ekkert síðan ég flutti heim frá DK. En áætlunin er að fljúga út eldsnemma á miðvikudaginn, eyða öllum miðvikudeginum inn í kóngsins köbenhavn og taka svo lestina til Næstved eftir að hafa borðað kvöldmat, eflaust á Jensen's Boffhus eða einhverjum álíka dýrindis matsölustað. Verðum svo hjá fjölskyldunni alla helgina, og munum gera okkar besta við að sýna nýju aupair stelpunni fram á ágæti Næstved. Mánudagsmorgun verður ferðinni svo aftur haldið inn í Köben og síðan flug heim mánudagskvöld, eins sorglegt og það á eftir að verða. Hlakka svo mikið til að mig er farið að dreyma að við séu þegar komnar út hehe En jæja það þýðir víst ekki að hangsa meira, best að klára þetta ógeð bara og koma sér heim. Óver end át!´ Jojo DK
»
23.07.2007 20:51:06 / johannab
Nýjar myndir komnar á netið undir Fljótsdalshérað 07.07 úr
langferð minnar og Eyrúnar að heimsækja strákana okkar á
austurlandinu Með eindæmum vel heppnuð ferð þökk sé Sindra,
Davíð, Bjössa, Árna, Nökkva, Pétri og öllum hinum sem við
hittum og kynntumst Endilega tjékk itt át 
Jojo
»
08.05.2007 19:26:30 / johannab
Já nú er víst soldið langt síðan sumarið kom eins og María var
svo góð að benda á og tími kominn á smá innlegg...
Leikar standa þannig að lokaprófum er lokið og komu þau bara
mjög vel út, 8,75 í meðaleinkunn úr þeim. Einnig er liðið langt á
síðasta áfanga annarinnar þar sem bekkurinn hefur verið í stríði
við verst liðna kennara skólans. Mjög áhugaverður áfangi og
skemmtilegur, en lítið fer fyrir kennslu og meira fyrir rifrildi
við kennarann. Allt ætlaði að sjóða upp úr í gær þegar afhentar
voru einkunnir fyrir fyrsta verkefnið enda var þetta svo út úr
korti að enginn í bekknum hefur verið vitni að öðru eins.
Eftir mikla gagnrýni og kvartanir tókst að fá kallinn til að fara
yfir verkefnin aftur og vona ég að þetta komi betur út eftir það.
Sem sagt stríðsástand í skólanum 
En nú styttist í að skólinn klárist og við
tekur Eurovision, djamm og afmæli JEEE Stefnan er tekin
á að hittast niður á Skúló hjá Helgu og Gulla og horfa á
undanúrslitin á fimmtudaginn og svo heima hjá mér á laugardaginn
fyrir aðalkeppnina. Tilvalið að halda upp á afmælið á Eurovision.
Svo býst ég við að það verði skundað niður á Nasa í brjálað stuð
með Páli Óskari og fleiri Eurovision félögum á eftir. Hlakka
geggjað til 
Svo tekur bara við vinna niður á Pósthúsi yfir sumarið. Var
reyndar ýkt dugleg um daginn og vann 14-15 yfirvinnutíma svo ég
ætti að fá smá auka aur næstu mánaðamót Er ennþá að vonast til
að komast til DK í sumar, en það er alveg óvíst, sakna DK alltaf
jafn mikið. Vona svo bara að mörg tækifæri gefist til að
skreppa í bústað og út úr bænum í sumar, alveg bráð
nauðsynlegt. Allir sem hafa áhuga látið heyra í sér 
Leiter geiter
Jojo
»
19.04.2007 10:03:53 / johannab
Gleðilegt sumar

og takk fyrir
liðinn vetur!
»
18.04.2007 11:18:28 / johannab
Jæja þá eru 3 próf af 4 yfirstaðin og nú er bara að bíta á
jaxlin, þrauka út síðasta prófið og standa sig vel. Fór í
stærðfræðipróf í gær og gekk bara vel, þó svo að ég viti um eina
villu, en æ það þýðir ekki að væla yfir því núna Er svo búin að
fá út úr 2 fyrstu prófunum nú þegar og það kom svona líka vel út.
Fékk 9 í Burðarþolsfræði, uppáhalds fagið mitt, og svo 8 í
Efnisfræði sem að ég er barasta varla að trúa...var svo viss um að
ég myndi skíta á mig í því prófi, óvænt ánægja Síðasta
prófið er svo rennslisfræði og ætli það sé ekki tími til kominn að
drulla sér upp í skóla og byrja að undirbúa sig fyrir það svo ég
segi þetta gott í bili...
Jojo
»
14.04.2007 12:15:21 / johannab
Ég þori ekki annað en að henda inn stuttri færslu 
Atburðir:
1.Frábær árshátíð hjá nemendafélagi skólans á Grand Hótel. Góður
matur, frábær skemmtiatriði, góð tónlist og æðisleg stemmning. Allt
gekk upp og allir skemmtu sér konunglega.
2.Kvenna- og kallaferð með skólanum. Keila, pool, lappdans (sko
kennsla í lappdans ), matur, pravda, singstar og auðvita nóg af
áfengi. Endað svo á Austfirðingaballi á Players í góðri
stemmningu.
3.Byrjað í vísindaferð hjá ÍAV að skoða grunninn af nýja
tónlistarhúsinu. Eftir það nemendafélagskosningar og kosningadjamm
í Ásbyrgi. Mikið fjör og mikið gaman eins og alltaf, svaðaleg
sveifla tekin á dansgólfinu, spjall, far heim með Aðalbjörgu
nýkjörnum formanni eftir langan en góðan dag.
4.Ótrúlega vel heppnaður innflutningshittingur með vinum og
kunningjum. Hvítvín, ostar, snakk, frönsk súkkulaði
kaka, mikið spjallað og mikið hlegið, fíflaskapur eins og
okkur einum er líkt, frábært kvöld í alla staði.
Svo hafa nokkur spil verið tekin, góður matur og formúla um
páskana, en nú hefur alvaran tekin við. Prófin í full swing, búin
með 2 af 4, síðasta próf næsta föstudag og eftir það feitt
próflokadjamm 
Bæ í bili
Jojo
»
07.03.2007 10:14:53 / johannab
Jæja þá er maður loksins fluttur í höllina upp í sveit eða upp í
rassgati eins og flestir vilja meina að þetta sé. Við flutningana
fór ég virkilega að spá í því hvernig í ósköpunum ég ætti nú að
koma öllu þessu dóti fyrir, en viti menn, allt komst þetta á
einhvern hátt inn í stóru litlu holuna mína og meira til
Finnst hún bara stækka í hvert skipti sem ég horfi yfir hana.
Helga G var svo mikill snillingur að redda mér 4 gefins
eldhússtóla og Helga S sá til þess að ég ætti að
geta boðið fólki upp á að borða af diskum og drekka úr
glösum, ævinlega þakklát fyrir það Svo fór ég í uppáhalds
búðina mína núna, IKEA, og keypti sófaborð, 4 sessur á
eldhússtólana og lampaskerm. Ég veit að þið eigið ekki eftir að
trúa því en mér tókst að fara út með þetta allt undir 5000
kalli! Svo á bara eftir að kaupa sjónvarpshillu og þá ætti þetta að
vera komið í bili Svo tekur náttúrulega alltaf svolítinn tíma að
koma sér fyrir en ég hef engar áhyggjur af því, ég hendi bara
draslinu inn í fínu geymsluna mína 
Annars eru bara tæpar 4 vikur eftir af þessum áfanga í skólanum
og svo koma víst fjandans prófin Maður verður bara að bíta á
jaxlinn og massa þetta! Allavega nóg að gera í félagslífinu í mars
til að halda manni tæplega SANE, allavega í bili.
Allir velkomnir í heimsókn á nýja staðinn, bara bjalla 
Óver end át for ná
Jojo
PS: Vil þakka öllum sem hjálpuðu til við flutningana kærlega
fyrir hjálpina 
»
26.02.2007 12:42:31 / johannab
Smá uppdate...
Það sem á daga mína hefur drifið síðan síðustu færslu...
mikið að læra eins og alltaf...en líka hellingur af skemmtilegum
atburðum svo sem
x-factor gláp á skúló þar sem ég hef
fengið hlutverkið heimilis hundurinn Plútó ásamt fyrra
sófakartöflustarfi. Eftir það heim til Árna að spila með
strákunum og Eyrúnu Trivial til hálf 5 um nóttina þar
sem stelpuliðið (ég og Eyrún) rúlluðum strákunum upp
HAHAHA! Á laugardagskvöldið þar síðustu helgi var
svo stelpukvöld, þar sem ég fór út að borða á Vegamótum með
Birnu, Thelmu, Svandísi, Guðbjörgu, Karólínu og Elvu. Það var mjög
kósý og kósýlegheitin héldu áfram heima hjá Karólínu með kokteilum
og Eurovision. Síðan var ég dregin með Helgunum tveim í
Eurovision partý á NASA með Páli Óskari DJ, og vá hvað það var
ógeðslega mikið stuð og mikið af fólki. Hitti fullt af
skemmtilegu liði og tvennan (Helga und Helga) fór næstum yfir
um þegar við hittum sjálfan Friðrik Ómar, heeeví næs gaur
sko!
Svo styttist enn meira í flutninga og núna eru bara 3 dagar
þangað til að ég fæ vonandi afhent vííííí Þar sem ég var sko
mega forvitin í n-ta veldi ákvað ég að fá Helgu G. með mér í
heimsókn til hennar Dagmar stuðkellu sem býr í alveg nákvæmlega
eins íbúð og ég er að fara að flytja í, til að sjá svona hvernig
þetta liti út. Og vá hvað þetta er kósý!!!!! ég er búin að vera
viðþolslaus síðan, hahaha, ég hlakkaði mikið til áður, en núna
er ég gjörsamlega að springa hlakka til að geta boðið öllum í
heimsókn á nýja staðinn Þetta var svo kósý hjá okkur að við
ákváðum að það væri TAKA 2 á föstudagskvöldið með Siggu
og bjór, hvítvíni, snakki og enn meira kósý....sátum þar 4 til
klukkan að ganga 3. Þá voru sumir orðnir það fullir að
þeir mundu ekki hvað þeir skrifuðu á msn svo að þá var tími til
kominn að skutla sumum í bæinn og drífa sig svo heim 
Á föstudeginum fór ég hins vegar 2 vísindaferðir hvorki meira né
minna. Sú fyrri var í boði Ármanns kennara í viðhaldsdeild
Icelandair út á Keflavíkurflugfelli. Þessi ferð var vægast sagt
algjör snilld. Inn í flugskýlinu fengum við að skoða þrjár
Boeing 757 þotur, þar á meðal eina sem var verið að taka í mjög
nákvæma skoðun og var þess vegna nánast í öreindum þarna á gólfinu
hjá þeim. Búið að rífa allt innan úr henni svo við gátum skoðað
alla víra og allt þannig dót. Fengum að fara inn í
flugstjórnarklefann, skoða inn í hreyfilinn og mótorinn, skoða allt
undir vængnum, inn í farangurshólfinu og bara allt sem við gátum
komist að Held að það verði soldið öðruvísi tilfinning að
fljúga eftir þessa ferð. Seinni ferðin var í Orkuveitu Reykjavíkur
sem var meira eins og hefðbundin vísindaferð með smá kynningu,
stuttum túr um húsið og svo veitingar á eftir. Það var fínt en
stóðst engan veginn samanburðinn við fyrri ferð dagsins 
Síðan þá hefur hefur bara leti og lærdómur horbjóður verið
ríkjandi og mun vera fram að flutningum. En þá verður sko líka
gaman hjá minni 
Hef komist að því við skrif þessarar færslu að það er víst
soldið sniðugt að blogga með styttra millibili, þetta tekur allt of
langan tíma svona, líka svo mikið að gerast að maður á bara í
stökustu vandræðum með að reyna að muna allt sem hefur
gerst 
En þetta er komið gott...kveð í bili
Jóhanna sem finnst geðveikt cool að geta sagt : Ég hef staðið
INN Í hreyfli á Boeing 757 þotu 
PS: Sigga það er víst cool hahaha
»
13.02.2007 18:49:00 / johannab
Nú er víst kominn tíma á að fara að hugsa hvað maður skuli gera
af sér næsta sumar. Veit ekki alveg hvort að ég reyni að finna mér
vinnu eitthvað tengda náminu eða hvort ég aulist bara, fari
auðveldu leiðina og vinni eitt sumar í viðbót hjá Pósthúsinu. Það
er voðalega freistandi að fara aftur í vinnuumhverfi sem maður
þekkir vel, en þannig kemst maður víst ekkert lengra í lífinu. Jæja
það mun koma í ljós fyrr eða síðar.
Hvað ætlar fólk annars að bralla skemmtilegt í sumar? Ég held að
það sé bara must hjá mér að fara til elsku bestu Danmerkur ef að
fjárhagur leyfir. Er með svo mikil fráhvarfseinkenni í augnablikinu
að ég hef ákveðið að halda mína eigin dönsku daga þar sem allt
danskt mun vera í miklu fyrirrúmi hjá mér næstu daga Gígja
frænka er að fara á tónleika með Justin Timberlake á Parken 23.júní
og mig dauðlangar með! Svo er nátla Roskilde Festival eins og á
hverju sumri og er útlit fyrir góða hátíð í ár. Væri
algjör snilld að komast með nokkrum krökkum úr tæknifræðinni
og helling af öðrum íslendingum á mína fyrstu Hróaskelduhátið!

Það styttist alltaf meir og meir í flutninga. Fékk búnt af
kössum niður í vinnu áðan og held að ég fari bara að byrja að
pakka niður. Nenni ekki að vera í stresskasti að pakka öllu í einu
niður nokkrum dögum fyrir flutninga, það er samt svo
tíbískt ég Svo er ég víst búin að lofa innflutningspartý, en
það virðist sem að ég verði að halda fleiri en eitt þar sem
mjög ólíklegt er að allir komist inn í litla 43 fm stúdíóíbúð í
einu. 
Men nu gider jeg ikke mere, hej så længe...
PS: Nýjar myndir frá partýinu í Hafnafirði og kveðjupartýinu
hennar Maríu (verð eiginlega að fá fleiri myndir hjá ykkur
Helgunum, skammarlegt að vera bara með 5 birtanlegar myndir
)
»
11.02.2007 11:26:45 / johannab
Vá hvað tíminn líður hratt! Ég sem ætlaði að vera svo dugleg að
blogga, bara ekkert að standa mig í þessu, það er bara svo mikið að
gera hjá mér þessa dagana.
En merkileg tímamót framundan hjá mér, er að flytja að heiman!
Er varla að trúa þessu ennþá. Sótti um að fá íbúð til leigu hjá BN
(Byggingafélag Námsmanna) en gerði mér engar vonir um að fá
úthlutað fyrr en í haust, fyrsta lagi í vor, en ég var varla búin
að sækja um fyrr en ég fékk úthlutaða stúdíóíbúð upp í
Grafarholtinu Fæ vonandi afhent 1.mars ef ekkert þarf að gera í
íbúðinni á undan, sem er mjög ólíklegt held ég. Sem sagt flutningar
eftir 2 og hálfa viku 
Svo er handboltinn búinn í bili, strákarnir stóðu sig eins og
hetjur. Voru hrykalega nálægt því að komast í 4 liða úrslitin, eins
og allir sem horfðu á leikinn á móti dönum muna væntalega, þar sem
þetta var mest spennandi handboltaleikur í sögu landsliðsins hlýtur
að vera! En allt kom fyrir ekki og endaði liðið í 8.sæti. Áttum
samt markahæsta mannin á mótinu og 5 markahæstu af 10, ekki afleitt
það 
Búið að vera fullt að gerast í félagslífinu
undanfarið. Hafnafjarðarþrennan í skólanum(aka Andrés, Nökkvi
og Sindri) buðu liðinu heim til sín eftir vísindaferð í VSB og
eftir snilldar partý var aðeins kíkt niður í bæ. Samtals 13-14 tíma
djamm hvorki meira né minna, enda var maður alveg búinn á því
daginn eftir Kvöldið eftir var María með kveðjupartý, var
svona frekar róleg í því sökum svaðalegs djamms daginn áður. En
drattaðist nú samt með þeim niður í bæ og þetta endaði bara með
rosa góðu kvöldi Svo var vægast sagt snilldar
óvissuferð í gær með Technis! Fær stjórnin og Heiðrún sérstaklega
EITT RISASTÓRT KLAPP fyrir vel heppnaða ferð! Byrjuðum á því að
fara á hestbak hjá Íshestum í Hafnafirði sem var bara ÆÐISLEGT,
kveikti alveg á hestasýkinni aftur! Vá ég verð bara að komast aftur
á bak sem allra allra fyrst! Lýsi eftir einhverjum sem vill koma
með mér á hestbak, eða einhverjum sem getur komið mér á bak
Svo var farið í leiki og lærðir tveir dansar áður en það var
borðaður kvöldmatur í salnum hjá Íshestum. Eftir það var farið
niður í elliðarárdal í leiki, bjórþamb og Dogeball og stóð ég ein
eftir í mínu liði í Dogeball á móti 3 strákum í restina. Tókst
að taka einn út en svo asnaðist annar þeirra sem eftir var til að
grípa frá mér En ég ætla leyfa mér að halda að ég hafi líka
verið pínu ponsu lítill sigurvegari Eftir leiki var náð í meira
áfengi, gítarstemmningin sótt upp í skóla og svo var haldið af stað
út fyrir bæinn þar sem við enduðum í fínustu skemmu í
Borgarfirðinum held ég og þar var svaka stemmning með þorramat og
miklum söng Eins og ég sagði til að byrja með, SNILLDAR
ferð!
En jæja þá er María mín farin aftur á vit ævintýranna í
Ástralíu, vá hvað ég á eftir að sakna hennar mikið. En get bara
byrjað að hlakka til að hitta hana aftur þegar hún kemur heim næst

Læt þetta nægja í bili, sé hvort að ég komi nokkrum nýjum myndum
inn fljótlega ef að talvan lætur af stjórn...
Jojo hestasjúka
»
25.01.2007 15:40:42 / johannab
Fyrst að (nota bene ekki VÍST að ) maður situr hérna
upp í skóla og hangir á netinu eins og mesti ónytjungur í stað
þess að gera eitthvað vitrænt eins og að grynka á
verkefnabunkanum fyrir næstu viku, ætli það sé þá ekki alveg
eins gott að henda inn einni færslu eða svo áður en verklegar
hamfarir hefjast í Ransóknarstofnun byggingaiðnaðarins eftir tæpan
klukkutíma.
Minns langar í nýja myndavél! Vélin mín er eitthvað biluð greyið
og hef ég verið að notast við vægast sagt mjög einfalda úgáfu af
vélinni minni sem er er barasta ekki nógu góð verð ég bara að
segja. Búin að sjá 6.0 millj.pixla Canon vél í ELKO sem mig langar
geðveikt í, með stórum skjá og þæginlegheit. En ætli það sé ekki
soldið blóðugt fyrir jafn fátækan námsmann og mig að smella sér á
gripinn, sennilega hægt að nota peninginn í eitthvað gáfulegra en
það. En svo er líka spurning, hvers vegna að byrja allt í einu á
því að vera skynsamur núna, á maður að taka íslenska mottóið á
þetta, kaupa draslið og hugsa svo bara "Þetta reddast! " 
Undanfarnir dagar hafa verið sannkallaðir handboltadagar eins og
sennilega flestir hafa tekið eftir. Íslenska landsliðið í handbolta
átti þennan líka stórkostlega seinni hálfleik í gær á móti Túnis
eftir að hafa verið 5 mörkum undir í þeim fyrri. Mikið er ég nú
fegin að hafa misst bara af fyrri hálfleiknum, ætli maður hefði
ekki verið farin að skæla og hættur að horfa þegar útlitið var sem
verst. En liðið sýndi mikinn karakter, gáfust ekki upp og áttu
bókstaflega allan seinni hálfleikinn. Svo er bara spurning
hvort að liðið nái að sigra Pólland í kvöld og tryggja sér þannig
sæti í 8 liða úrslitunum. Þó að ég hafi fulla trú á að strákarnir
geti þetta, þá er ég nú samt að hugsa um að halda mig á jörðinni og
vera sæmilega svartsýn á þetta, vonbrigðin verða þá minni ef allt
fer á versta veg.
En ég segi bara ÁFRAM ÍSLAND og vona að ég lifi af verklegar
hörmungar og 60 min stresskast.
»
23.01.2007 22:16:15 / johannab
Jæja gleðilegt nýtt ár allir saman, ef það er einhver sem kíkir
á þessa síðu ennþá... síðan síðast fyrir löngu síðan er allt bara
búið að vera brjálað að gera í uppáhalds langbesta skólanum mínum
HR upp á Höfðabakka, áður Tækniskóli Íslands. Það gekk líka svona
þrusu vel á síðustu önn að það þýðir ekkert að slaka á á þeirri sem
nýlega er hafin. Fyrir utan að læra fylgir það víst
háskólalífi svona líka svakalegt djamm á nánast hverjum einasta
föstudegi, þar sem maður er nú í tveimur nemendafélögum hvorki
meira né minna. Fórum líka góður hópur í helgarferð austur á
land og kíktum á Kárahnjúka og Reyðarfjörð og allar framkvæmdirnar
þarna fyrir austan. Þar fór eitt stykki rúta út af, en
það fór betur en áhorfðist og hefur þessi ferð þar af
leiðandi einnig verið þekkt sem Rútuferðin. Það var
mjög skemmtileg ferð eins og líka Ómenningarferðin á Akureyri
síðast liðnu helgi. Þar var eitthvað Háskólamót á vegum Háskólans á
Akureyri...en mest af öllu bara djamm og meira djamm með úrvals
fólki úr tæknideildinni ásamt báðum verkfræðinemunum í
ferðinni...þær voru nefnilega alveg 2! 
María Barbara ákvað að heiðra landsmenn með nærveru sinni yfir
jól og áramót, en elskan er víst að fara að stinga okkur af aftur í
febrúar Höfum átt mjög góðar stundir síðan hún kom í endan
nóvember, meðal annars geðveikir rockstar tónleikar og frábært
þrettándadjamm í mat og öll herlegheit ala Helga Sveins á
Skúlagötunni. Eigum allavega eftir eitt gott djamm og eflaust
nokkur video og spilakvöld ef ég þekki okkur rétt áður en hún fer
aftur að hoppa með kengúrunum.
Ásamt þessu ætla ég að henda inn hellings af myndum frá
Kárahnjúkum (aka rútuferðin), ómenningunni á Akureyri og
Þrettándadjamminu, ENJOY
»
20.08.2006 16:17:19 / johannab
Já þið segið það, bara allir duglegir að blogga nema ég...hmmm
meira að segja María, þá er ástandi orðið slæmt á þessum bæ 
hahaha. En já ég skal reyna að gera eina tilraunina enn til að
endurlífga þetta blessaða blog.
Já ég er sem sagt bara búin að vera að vinna í allt sumar, fékk smá
frí til að fara í sumarbústað tæpa viku með mömmu og brósa. Thelma,
Adrien og Kristbjörg komu með og voru yfir helgina, og var
heitapotturinn óspart notaður! Mjög góð ferð þrátt fyrir grenjandi
rigningu og bilaðar rúðuþurkur! já sko alveg mín heppni!
Í endan júní fékk maður svo aldeilis óvænta heimsókn. María Barbara
prakkari kom heim í mánuð án þess að láta nokkurn mann vita og
tókst að láta mig fá létt taugaáfall. Hef aldrei lent í svona
aðstæðum áður, ætlaði bara ekki að trúa mínum eigin augum að hún
stæði þarna í alvörunni, bara draumur í dós! Fórum ma. í singstar,
á Þingvelli og á Vegamót að fá okkur góðan mat, mmm. Það var
yndislegt að fá þig í heimsókn, get ekki beðið þangað til í vetur
þegar þú kemur heim aftur, það styttist nú sem betur fer í það!
Síðan skrapp ég með pabba til Þýskalands á Formúlu 1 keppni á
Hockenheim. Veðrið var geggjað, sól og 30-35° allan tíman. Vorum á
brautinni alla helgina að horfa á æfingar, tímatöku og svo keppnina
sjálfa í vægast sagt MJÖG RAUÐU Ferrari/Schumacher umhverfi, svo
sem alveg við því að búast þarna. Það var svo ekki til að skemma
rauðu stemmninguna að fá töfaldan Ferrari-sigur og Shummí í fyrsta
 En vá þetta er ekkert smá stórt batterí þessi keppni, heilt
þorp af sölu og sýningarbásum sem var hægt að skoða og staðir til
að fá sér að borða og slappa af á milli atriða. Getið séð smá part
af því á myndunum sem ég setti inn. Ætla ekkert að reyna að lýsa
tilfinningunni og kickinu sem maður fær við að vera actually á
staðnum með bílana á rúmlega 200 km hraða á klst. framhjá sér og
öll lætin sem því fylgja, mæli bara með því að allir sem hafa
minnstan áhuga á þessu prófi þetta allavega einu sinni! Versta við
það er að þegar maður hefur prófað einu sinni er maður alveg húkt
 Þýskaland og Formúla sem sagt snilld!
Á föstudaginn var svo nýnemadagur HR, mæting niður í HR Ofanleiti
milli 8 og 9 þar sem skólinn var settur og svo fengu allir túr um
skólan nmeð sýnum nemendafélögum. Minn hluti tók rútu upp á höfða
til að skoða aðstöðuna okkar þar uppfrá. Eftir það var boðið í
grill niður í Ofanleiti þar sem allir söfnuðust saman aftur.
Eftir allt þetta var skroppið heim og útilegudótið tekið til þar
sem ég og Sigga ákváðum að skella okkur í nýnemaútileguna upp í
Þrastarskóg. Við erum nátla svo miklir snillingar eins og allir
vita að okkur tókst að fara í kolvitlausa rútu með Pragma
(Nemendafélag verkfræðinema við HR) og nýnemum í verkfræði, úpsasí
 En þau voru bara ótrúlega næs og tóku okkur bara í hópinn þó að
Sigga sé að fara í viðskiptafræði og ég í tæknifræði. Okkur sem
sagt tókst að kynnast vitlausu fólki svo við verðum bara að kynnast
fólkinu í okkar deildum þegar skólinn byrjar  Upp í
Þrastarlundi var svo bara þrusu stemmning með risa partýtjaldi og
öllu sem til þarf. Og ekki vantaði veigarnar þar sem búið var að
koma fyrir nokkrum fiskikörum fullum af klökum og ísköldum TUBORG!
Versta við frítt áfengi er dagurinn á eftir  En hann er liðinn
hjá og góðu stundirnar standa upp úr 
En nú fer alvara lífsins að taka við! Skólinn byrjar hvorki meira
né minna en bara á morgun, sjæse! Var reyndar ýkt dugleg og fór á 2
vikna undirbúiningsnámskeið í stærðfræði og eðlisfræði. Er ótrúlega
fegin að hafa drifið mig á það, vonandi að það hjálpi manni að
komast af stað í geðveikinni. Svo er bara að duga eða drepast. Ætla
mér að DUGA í þetta skipti! Lýst bara vel á þetta svona só far.
Jæja smá ritgerð, getið allavega hætt að
kvarta yfir blogleysi, en ég lofa engu um hvenær má búast við næstu
færslu 
Kv jojo
»
04.06.2006 16:28:26 / johannab
Jæja búin að bæta fullt af myndum inn á netið, bæði nýjum og gömlum
 Tékkið td á linkum Djamm 2006 og Kveðjupartý, Ástralía og
fleira.... enjoy 
Jojo
»
02.06.2006 18:58:17 / johannab
HAHAHAHAHA ég er að fara frítt á Roger Waters - Pink Floyd, á
A-svæði...algjör snilld...10 þús kall sem maður sleppir við að
borga, ekki slæmt það ha ?!?!?! I love my job right now 
allavega hlakka geggjað til! Á döfinni í sumar: Sumarbústaður
fyrstu helgina í júlí, kannski út til Danmerkur 5-24.júlí ef að ég
get reddað því, einhverjar útlegur vonandi og svo Formúla 1 í
Þýskalandi með pabba!  Svo tekur bara alvara lífsins við í
ágúst...æ ætla nú ekkert að vera að drepa niður þetta góða
sumarplan hjá mér með því að vera að pæla allt of mikið í því í
augnablikinu, það verður tekið á því þegar þar að kemur 
Óska annars öllum bara góðrar langrar hvítasunnuhelgi 
Jojo
»
Síður: 1 2 3
|
Dagatal
| febrúar - 2012 | | S | M | Þ | M | F | F | L | | | | 1 | 2 | 3 | 4 | | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | | 26 | 27 | 28 | 29 | | Fyrri | Næsti |
Dagsetning
10. febrúar 2012
|